Árið 2019 er gegnið í garð sem þýðir að við erum byrjuð á nýrri blaðsíðu. Það er alltaf jafn góð tilfinning að byrja nýja árið og setja sér ný markmið og svo framvegis. Annað sem er líka ótrúlega skemmtilegt pæla í og skoða eru tískustraumarnir fyrir árið. Hér má sjá nokka punkta fyrir 2019 varðandi förðunin:
Förðunin tónuð niður
Nú er loksins komið að því að förðunin verður tónuð örlítið niður. Burt með "heavy make-up" og inn með létta förðun. Minna um skyggingar, meira um náttúrulegri augnhár og minni þekja.
Grafískur eyeliner
Grafískur eyeliner af allskonar tagi verður vinsæll á þessu ári
Vængaður eyeliner
Vængjaður eyeliner heldur áfram að vera vinsæll
Glossuð áferð
Glossuð augu, gloassaðar varir og glossuð húð! Prófaðu að taka þinn uppáhalds gloss og setja bæði á augu og varir og skelltu svo á þig maskara.
Pastellitaður augnskuggi
Pastellitir á augun verða áberandi á árinu. Það kemur einstaklega vel út að para saman pastellitaða augnskuggan við brúnan eða svartan eyeliner
Litaðar varir
Rauðar, bleikar og coral litaðar varir í allskonar tónum